NÝLISTASAFNIÐ

Nýlistasafnið eða Nýló eins og safnið er nefnt í daglegu tali, var stofnað árið 1978 og er því eitt elsta safn og sýningarrými í Evrópu í umsjón listamanna. Nýlistasafnið hefur verið einn helsti vettvangur fyrir samtímalist á Íslandi og á einstakt safn verka eftir íslenska og alþjóðlega listamenn frá sjötta áratug síðustu aldar og fram til dagsins í dag.

Á hverju ári stendur safnið fyrir öflugri sýningardagskrá auk þess að vera vettvangur ýmissa viðburða, safnfræðslu og rannsókna. Í safneign Nýlistasafnsins eru yfir 2.200 verk sem gefin hafa verið af listamönnum, fulltrúum, söfnurum og einstaklingum sem tengjast safninu.

Nýlistasafnið
Marshallhúsið — Grandagarður 20, 101 Reykjavík
www.nylo.is

Previous
Previous

KLING & BANG